"It doesn't mean anything! It's like 'ramalamadingdong' or 'give peace a chance'!" --Homer Simpson :)

mánudagur, ágúst 08, 2005



Amli...
Í dag á ég amli. Í tilefni þess tók ég mér frí í vinnunni og ætla að slappa af. Eftir 2 ár verð ég kominn á fertugsaldurinn. Mein got!!! Þá verður stutt í gráu hárin... ef það verða einhver hár eftir á hausnum það er að segja. God help us, everyone!

fimmtudagur, ágúst 04, 2005



Sumarfríið mitt í punktaformi...
Sumarfríið mitt er á enda. Fer að vinna um helgina. Í sumarfríi mínu gerði ég eftirfarandi.
- 4. júlí. Fór til London. Var næstur sprengdur í loft upp.
- 13. júlí. Reyndi að tjalda í Varmahlíð en tjaldsúlurnar gleymdust. Í staðinn var rándýr heimagisting í Hólum í Hjaltadal fyrir valinu.
- 16. júlí. Brúðkaupsveisla í Garðarholti. Ókeypis Carlsberg. Nammi namm. Tjaldsúlurnar finnast ekki.
- 18. júlí. Fórum í sónar að skoða nýja barnið. Fengum rosafínar myndir. Var ekki að sjá að barnið hefði tjaldsúlurnar.
- 20. júlí. Fylgdist með FH tapa fyrir aumingjum frá Azerbaidjsan? (whatever) sem komu hingað til lands til að liggja í sólbaði á Kaplakrikavelli og grenja. Dauðaleit gerð að tjaldsúlunum.
- 22. júlí.
Enn finnast ekki tjaldsúlurnar. Nýtt tjald keypt. Doh! Gat á buddunni. Tjölduðum á Kirkjubæjarklaustri með Elfari og Maren....i og co.
- 29. júlí. Verslunarmannahelgin. Farið í nýja Salalaugina í Kópavogi með fjölskyldunni og slappað af. Drakk tvo bjóra alla helgina. Djííísus.
- 2. ágúst.
- 3. ágúst. Fylgdist með Fram slá út FH í vítakeppni í bikarundanúrslitunum. Bömmer.
- 4. ágúst. Er að hlusta á nýja Coldplay diskinn í heild sinni í fyrsta skipti. Shitt. Hvar hef ég verið?

Fyrir utan þessa punkta hér að ofan er ég búinn að horfa mikið á vídeó, spilað mikið af tölvuleikjum og fara oft í sund.

Fylgist með í næsta þætti þegar gurg fer aftur að vinna horfir mikið á vídeó, spilar mikið af tölvuleikjum og fer ekki oft í sund (of kalt).

föstudagur, júlí 15, 2005

Londons burnin'......
Þá er kominn tími til að hætta þessu bulli og fara að blogga á ný. Þrátt fyrir að ég sé ennþá í sumarfríi og ennþá með þessa nettengingu og sagðist ekki ætla að blogga fyrr en eftir sumarfrí.

Síðan ég gurgaði hér síðast hefur ýmislegt merkilegt gerst. Þann 4. júlí síðastliðinn fórum ég og frúin til London eins og áður hefur komið fram. Var planið að fara með lest til Ipswich fimmtudaginn 7. júlí og heimsækja æskuheimili mitt í Felixstowe sem er rétt hjá. Við ætluðum að vakna klukkan 8, fá okkur morgunmat á hótelinu og rölta að Bayswater öndergrándinu og taka Circle línuna upp á Liverpool Street. Einhverja hluta vegna slökktum við á vekjarklukkunni klukkan 8 og sváfum hálftíma lengur. Við vorum kominn um tíu mínutur yfir 9 upp á Bayswater stöðina og sáum að sú stöð var lokuð. Við fengum enga nánari útskýringu á því af hverju hún var lokuð og ákváðum því að labba upp á Paddington stöðina, sem var 20 mínutna gangur. Á leiðinni þangað heyrðum við einhver tala um bílasprengju á Liverpool Street. Með hnútinn í maganum héldum við áfram upp á Paddington og þegar þangað var komið blasti við okkur hersing af lögreglubílum, slökkviliðsbílum og sjúkrabifreiðum ásamt tilheyrandi fréttaþyrlum og dóterí. Ég talaði við einn starfsmann Paddington stöðvarinnar og hann mælti með því að ég færi bara aftur upp á hótel ef ég vildi halda lífi slíkt væri ástandið. Paddington stöðin var rýmd til að leita að fleiri sprengjum því ein slík sprengja hafði þá sprungið í neðanjarðarlestinni við Edgware Road sem er næsta gata við Paddington!!! Restin af deginum fór í það að hanga upp á hótel að fylgjast með fréttunum í sjónvarpinu. Stuttu áður en við vorum komin upp á hótel náði pabbi loks í gegn í farsímann og tilkynnti mér að ekki bara tvær sprengjur höfðu sprungið heldur fjórar, þar af ein í strætó. Þá fyrst kom sjokkið þegar við uppgvötuðum hversu nálægt við vorum að vera viðstödd þegar ósköpin dundu yfir. Hefðum við farið á fætur kl. 8 í staðinn fyrir 8:30 hver veit hvað hefði gerst. Nú hefur reyndað komið í ljós að þessir fjórir einstaklingar sem sprengdu sig í loft upp hafi allir hist á Kings Cross of farið þaðan í suður, vestur, austur og norður. En sá sem hafi ætlað norður hafi ekki komist og þess vegna endað í einhverju stresskasti í strætó á Tavistock Sq. Við ætluðum í austurátt með Circle-línunni en við hefðum hoppað út á Liverpool Street. En sá sem var á austurleiðinni fór örlítið lengra og sprengjan sprakk á milli Liverpool Street og Aldgate stöðvarinnar (næsta stöð við). Ég veit ekki, maður bara feginn að vera á lífi eftir svona. Ég var farinn að hlakka mikið til að sjá Felixstowe aftur eftir tæp 20 ár en það verður bara að betri tíma. En þriðjudagurinn og miðvikudagurinn nýttust ágætlega. Við gátum verslað, fórum á Lion King sýninguna sem var geðveik og skoðuðum söfnin.

Síðan fórum við í leigubíl upp á flugvöll á föstudeginum sem kostaði heil 80 pund!!!! Shitt! En það var kannski þess virði því lestirnar voru flestar ekki farnar að ganga á föstudeginum og strætóarnir voru troðnir og við með níðþungar töskur. Bílstjórinn sem keyrði okkur var ótrúlega fyndinn náungi. Hann var á geðveikum silfurlitaðuðum Benz, var ábyggilega 70 og eitthvað ára með svona bílstjóra húfu og kom með þessa frasa á leiðinni.... "Everything alright, siiiiiir" "Is it alright I have the window down, madam?" "Are you cold, madam" "Nearly there, sir". Hann hefur örugglega heitið Jeeves eða eitthvað álíka. Hann hallaði sér líka alltaf fram þegar hann keyrði, örugglega ekki séð rassgat... á 130 km hraða á hraðbrautinni. He he he. Fyndinn gaur.

fimmtudagur, júní 16, 2005



Sömmmer 'oliday
Jæja, gott fólk nú verðið þið gjörið svo vel að snúa ykkur að einhverju öðru. Sumarið er komið. Sumarfrí er á næsta leyti (síðasti vinnudagur fyrir frí 1. júlí hjá mér..tíhí) og er ljóst að ég ætla að skella mér í blogverkfall. Nú ætla ég að njóta samverustundar með fjölskyldunni og segja upp internettengingu minni hjá símanum, enda komið eitt ár og kominn tími til að fara eitthvað annað. (Sorrý, Sverrir en þannig liggur landið). Í sumarfríinu ætla ég að skella mér í fimm daga til London, njóta lífsins og skella mér á leiksýningu og skoða söfnin og eitthvað flipp. Voða menningalegur. Þið heyrið ferðasöguna síðar í haust. Þangað til, gleðilegt sumar.

mánudagur, júní 13, 2005

Sonur minn á afmæli í dag. Þriggja ára. Til hamingju með afmælið, Gizmo ofurkrútt.
Just married...
Það viriðst vera annar hver maður að gifta sig þessa dagana. Þrír æskuvinur mínir eru að ganga í það heilaga. Kannski af því þetta er svona tilvalinn giftingaraldur, 26-28 ára. Í dag fékk ég boðskort í brúðkaup sem á sér stað í Tasmaníu. Svolítið langt að fara þannig maður veit ekki hvort maður eigi að skella sér eða ekki. Ég fór ekki í fermingaveislu á Akureyri fyrr í vor sökum fjarlægðar þannig að brúðkaup í Tasmaníu (sunnan Ástralíu skiljiði) er svolítið fjarlægt nema fyrir fólk sem er að safna flugpunktum eða eitthvað.

Ég og Berglind ætluðum að gifta okkur í sumar, nánar tiltekið 09.07.05... töff dagssetning...en úr því varð ekki. Annað barn á leiðinni og fjárhagurinn sáu til þess. Það er ekki auðvelt að rumpa út úr sér 500 þúsund til milljón kall fyrir brúðkaupi einn tveir og þrír. Vorum búin að panta kirkjuna, salinn og kjólinn og alles. En þetta verður bara að bíða betri tíma. Kannski að maður slái saman skírn og brúðkaupi....iiiiiiiiii.

Kannski að maður skelli sér bara til Tasmaníu. ...iiiiiiiii.

En alla veganna til hamingju Friðrik og Cynthia.
Til hamingju Bjarki og Vala.
Til hamingju Hannes og Gerður.
Til hamingju allir saman.

Það er eitthvað farið að lengjast á milli blogga hjá mér. Hefur áreiðanleg eitthvað að gera með veðrið sem hefur leikið við mann þessa dagana. Maður nennir ekki að hanga inni og blogga alla daga.

fimmtudagur, júní 02, 2005



My spidey sense is tingling... anybody call for a web slinger?...
Dreymdi skrýtinn draum í fyrradag en í honum voru útlendingar að koma og skoða álverið (þar sem ég vinn) og ætluðu þeir að gera einhvers konar úttekt á fyrirtækinu eða eitthvað svoleiðis. Setja út á það sem betur mætti fara og eitthvað. En svo illa vildi til að ég var klæddur í Spiderman-búning í draumnum og þar af leiðandi í ólöglegum fatnaði þ.e. ekki í viðeigandi öryggisfatnaði (hey..hver veitir meira öryggi en Spiderman sjálfur segi ég nú bara). Þannig að ég var þarna hlaupandi á milli kerskála að passa að rekast ekki á gestasloppa-hersinguna sem rölti á milli staða í álverinu. Fokkin wírd shit.

Fór með the missus í MFS mæðraskoðun um daginn. Þar gekk allt vel og fengum við að heyra hjartsláttinn hjá nýja fjölskyldumeðlimnum. Berglind þurfti síðan að fara í blóðprufu og á meðan beið ég fyrir utan þar sem þrjú eftirfarandi tímarit voru í boði, Blað Alþjóðahúss, Félagsrit Landssambands Eldri Borgara og Blað Meðferðaheimils að Hvítárbakka. Þetta var eitthvað lengsta korter sem ég hef upplifað.

Tókst að næla mér í ódýrt flug til London handa mér og frúnni með Iceland Express en við borgum c.a. 9500 kall á mann fram og tilbaka. Flugið kostaði 4000 kall en flugvallaskatturinn 5500 kall!!!! Ágætlega sloppið það. Verðum við í fimm daga og er ætlunin að skoða gamla pleisið þar sem ég bjó á mínum yngri árum. (Sjá kort).

Enn er fólk að bætast á listann hér við hliðina. Nú eru það fjarkinn Bjarki, toppgaur, toppsíða og Guðmundur Hörður, umhverfisverndarsinni og kommúnisti.

Framundan er afmælið hans Gísla Más þar sem Spiderman-þema mun ráða ríkjum (what else?).

föstudagur, maí 27, 2005

Bumbugull...
Þá er það orðið official. Nýjasti meðlimur bloggheimsins er kominn á listann hér við hliðina á undir nafninu Bumbugull. Útskýrir sig sjálft... :)


This page is powered by Blogger. Isn't yours?